Heildarafli í október 2022 var 129.469 tonn sem er 8,5% aukning frá október á síðasta ári, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Botnfiskafli var tæplega 37 þúsund tonn sem er 8,7% aukning frá fyrra ári. Af botnfisktegundum var þorskaflinn um 21,5 þúsund tonn. Af uppsjávartegundum veiddust 90 þúsund tonn samanborið við tæp 84 þúsund tonn í október 2021.

Á tólf mánaða tímabili, frá nóvember 2021 til október 2022, var landaður afli rúmlega 1,5 milljónir tonna, sem er rúmlega 42% aukning frá fyrra tólf mánaða tímabili. Þar af var uppsjávarafli rúmlega 1.055 þúsund tonn og botnfiskafli tæp 440 þúsund tonn.

Upplýsingar um fiskaflann eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands, útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Þá kemur fram á heimasíðu SFS að útflutningsverðmæti sjávarafurða hafi numið tæplega 30 milljörðum króna í október. Það er um 12% aukning í krónum talið frá sama mánuði í fyrra, en um 17% sé leiðrétt fyrir gengisbreytingu krónunnar.

„Á fyrstu 10 mánuðum ársins er útflutningsverðmæti sjávarafurða þar með komið í tæpa 288 milljarða króna. Það er um 18% aukning í krónum talið frá sama tímabili í fyrra, en um 23% í erlendri mynt. Útflutningsverðmæti sjávarafurða hafa ekki verið meiri á fyrstu 10 mánuðum ársins á þessari öld."