Það er líf og fjör í Fáskrúðsfirði þessa dagana, en í fyrradag var skipað út um 516 tunnum, sem eru tæp 50 tonn, af síldarbitum sem fara til Kanada. En þennan sama dag var landað um 110 tonnum af bolfiski úr Ljósafellinu. 

Síld er nýtt í mikinn fjölda ólíkra neytendaafurða og eru fáar ef nokkra fisktegundir nýttar á jafn fjölbreyttan hátt og síld. Það er ekki bara að síldin sé verkuð heil í salt, heldur er verið að skera hana og flaka með ýmsum hætti.