Fyrsta mæling á 2021 árgangi þorsks bendir til að hann sé undir meðalstærð árganga frá 1984. Árgangur 2020 er nálægt meðaltali af fjölda 2 ára, árgangur 2019 mælist yfir meðaltali 3 ára þorsks og árgangar 2018 og 2017 eru nálægt meðaltali 4 og 5 ára.

Þetta kemur fram í skýrslu Hafrannsóknastofnunar þar sem gerð er grein fyrir framkvæmd og helstu niðurstöðum stofnmælingar botnfiska á Íslandsmiðum sem fram fór dagana 28. febrúar til 24. mars 2022. Niðurstöður eru bornar saman við fyrri ár, en verkefnið hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti ár hvert frá 1985.

Í frétt stofnunarinnar segir:

Stofnvísitala þorsks hækkaði nær samfellt árin 2007-2017, fyrst og fremst vegna aukins magns af stórum þorski. Eftir lækkun árin 2018-2020 hefur vísitalan hækkað aftur. Þó svo að vísitala þorsks hafi aukist lítillega frá árinu 2020 er hún mun lægri en hún var á árunum 2015-2017.

Ýsa

Vísitala ýsu hefur farið hækkandi frá árinu 2016. Árgangar ýsu frá 2017, 2019 og 2020 mælast yfir meðaltali en yngsti árgangurinn frá 2021 er undir meðaltali. Árgangur ýsu frá 2018 er lélegur.

Meðalþyngd ýsu eftir aldri hefur verið há undanfarin ár og mældist nú yfir meðaltali hjá öllum aldurshópum nema 2 og 3 ára. Loðna var helsta fæða ýsu eins og ávallt á þessum árstíma. Talsvert var af loðnu í mögum flestra lengdarflokka á grunnslóð allt í kringum landið.

Aðrar tegundir

Vísitala ufsa hefur lækkað frá 2018 og er nú nálægt meðaltali rannsóknatímans. Vísitölur gullkarfa, löngu, keilu, steinbíts og litla karfa eru háar miðað við síðustu fjóra áratugi. Vísitala skötusels heldur áfram að lækka og hefur ekki verið lægri frá því fyrir aldamót. Stofn hlýra er enn nálægt sögulegu lágmarki en vísitala tindaskötu hækkar talsvert eftir langvarandi niðursveiflu. Vísitala grásleppu mældist í ár nálægt meðaltali áranna frá 1985.

Útbreiðsla fisktegunda

Útbreiðsla ýmissa nytjafiska hefur breyst á tímabilinu, t.d. ýsu og skötusels þar sem þungamiðja útbreiðslunnar færðist vestur og norður fyrir land upp úr aldamótum. Ýsa fékkst nú í svipuðu magni allt í kringum landið. Stofnmælingar síðustu ára benda til að útbreiðsla skötusels sé aftur farin að líkjast því sem var fyrir aldamót þegar stofninn var lítill, þ.e. bundin við sunnanvert landið. Magn ýmissa suðlægra tegunda sem lítið eru nýttar s.s. svartgómu, loðháfs, litlu brosmu og trjónuhala hefur aukist, en á sama tíma hafa ýmsar kaldsjávartegundir gefið eftir á landgrunninu fyrir norðan.

Kolmunni, spærlingur og síld fengust á óvenju mörgum stöðvum í marsralli 2022. Í fyrra fékkst tegundin brislingur í fyrsta skipti í marsralli en brislingur fannst fyrst á Íslandsmiðum árið 2017. Í ár fengust 25 brislingar á 10 stöðvum á grunnslóð við sunnan- og vestanvert landið frá Ingólfshöfða til Arnarfjarðar.

Umhverfisþættir

Hitastig sjávar við botn mældist að meðaltali hátt líkt og undanfarin ár, en þó má greina lækkun hitastigs á grunnslóð fyrir norðan og austan frá hámarkinu 2017.